fékk martröð í nótt, eða mér fannst það martröð, mig dreymdi nefnilega að ég væri að fara í próf en væri ekkert búin að læra, ég varð svo stressuð og þurfti alveg smá tíma að átta mig þegar ég vaknaði, að ég væri nú búin með skólann og þyrfti ekki að hafa áhyggjur. Mjög eðlilegt, maður losnar ekki við prófstressið þó maður sé ekki einu sinni í skóla furðulegt :) Reyndar held ég að það sé bara ég sem er furðuleg en það er allt annar handleggur.Búin að setja inn myndir frá Rúmeníu ferðinni, þær eru hérna vinstra megin fyrir ykkur sem hafið áhuga.
Annars er bara jólahlaðborð á morgun með Århus, hlakka ekkert smá til, held að þetta verði snilld eða vona það allavega.
Annars er bara lítið sem ekkert að frétta, bara 5 dagar í Spán og það verður æði :)
jiiiii er tóm, en þið gætuð kannski sagt mér eitthvað skemmtilegt
luvBerglind
5 ummæli:
Gaman að skoða myndirnar hjá þér essskan. Ég fékk meira að segja að stela einni;)
Takk fyrir frábæra ferð:)
Hafðu það gott yfir hátíðirnar.
Gleðileg jól
Kv. Harpa
Hæ sæta! Bara láta að ég fylgist með svona þegar ég lít upp frá bókunum..
á kafi í próflestri..
Knús, hlakka til að sjá þig engill!
Hæ elskan..já doldið furðulegt að fá svona martröð þegar þú ert ekki einu sinni í próflestri..hehe
Gaman að skoða myndirnar og sjá hvað þið voruð að bralla úti í Rúmeníu :)
Ég og Eva vorum að spá hvort við gætum ekki fundið tíma til að kíkja með þér á kaffihús þegar þú kemur, þó þú komist ekki 22.??
Kannski 21.des? Eða bara einhverntímann þegar hentar þér...
Knús frá Beggsunni í próflestri
Þú mátt sko stela eins mörgum og þú vilt Harpa :) Takk sömuleiðis fyrir súper ferð, Gleðileg jól og hafðu það súper gott knúsBegga
ooo Gangi þér rosalega vel elsku Eva mín, hugsa til þín og sendi þér góða lærustrauma. Sakna ykkar og hlakka til að hitta ykkur knús og kossar Berglind
Hæ sæta Begga já er sko alltaf til í að hitta ykkur skvísur :) 21.des hentar mér alveg súper vel og kaffihús væri æði, fá sér heitt kakó og piparköku :) Gangi þér ofsa vel í prófinu á morgun sendi þér fullt af lærikröftum knús og kossarbeggaíris
Glæsilegt...segjum það þá...kaffihús 21.des ;)
Takk fyrir lærikraftana...get ekki beðið eftir að vera búin með þetta :)
Knús til þín sæta
Skrifa ummæli