06 desember 2006

er eðlilegt

að hafa þurft að strauja tölvuna mína 3 á einu ári og hún er bara árs gömul. Ég er meistari í að ná mér í einhverja fáranlega vírusa...arrggg hvað þetta getur verið pirrandi úffff. Sem betur fer var ég búin að taka copy af flestum myndunum mínum en það er mest svekkjandi í heimi að tapa öllum myndunum sínum sérstaklega þegar maður er ofvirkur á myndavélina eins og ég.
Ég er sko komin í jólaskap ætla á morgun til Århus að versla mér e-d jólaskraut. Er búin að setja upp eina seríu í gluggann, þannig að það er orðið smá jóló hjá mér. Þó að ég sé ein í kotinu verður nóg að gera hjá mér næstu daga, þrífa, skrifa jólakort, fara á jólahlaðborð með liðinu mínu, föndur og bökunardagur hjá Hröbbu og svo er náttla EM kvenna að byrja á morgun.
Já líf og fjör í baunalandi.
Ég er alltaf á leiðinni að skrifa ferðasöguna frá Rúmeníu hún kemur vonandi áður en árið er á enda.
sökum þess að commentakerfið mitt höndlar ekki álagið sem er við hverja færslu hef ég ákveðið að setja smá reglu en bara þið sem eruð í bleikum naríum megið commenta....
lifið heil
luvBegga

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Úpps, ég er ekki í bleikum!!! En ætla samt að kasta einni kveðju á þig sæta mín. Hlakka til að sjá þig... ;)

Nafnlaus sagði...

hey vá ég er akkúrat í bleiku og bleiku:)haha.Svo ég verð að commenta;)
Skemmtilegt jólastúss framundan hjá þér skvís.
Ég er líka komin í jólafrí í bili. Nanananabúbú!!;)
Heyrumst um helgina.
Knús og Kram

Nafnlaus sagði...

hey er í bleikum ;) híh í
en Beggi minn hvenær á að setja inn myndir frá því í fallega landinu Rúmeniú vorum ?


kv Lisa

Begga sagði...

Hlakka líka til að hitta þig Lilja mín knúsBegga

til hamingju með að vera búin í prófum frábært :) hafðu það best krúsí luvBerglind

Sæl Lísi minn ég set þær inn við fyrsta tækifæri sem verður eflaust í kvöld, morgun eða mánudag :)
kv.beggi