22 janúar 2007

Ég hafði rangt fyrir mér..leikurinn var sko aldeilis ekkert sýndur á netinu í gær..allavega ekki erlendis, bara innlendis þ.e.a.s. á Íslandi...já púúúú ekki sátt því ég hélt einmitt að þeir sem horfðu mest á netsjónvarp væru þeir sem eru erlendis. En jæja nennum ekki að velta okkur uppúr því en vonandi að varaáætlunin reddist en Hrabba er að vinna í því :)


Það gekk ekki nógu vel hjá "strákunum okkar" í gær því miður en ég hef fulla trú að því að þeir nái að sigra í kvöld, sendum þeim öll góða strauma.





Ég er samt búin að ákveða með hvað liði ég held ef að Ísland kemst ekki áfram en það er Ungverjaland. Þeir eru með DK í riðli þannig að við höfum séð leikina með þeim. Ástæðan er ekki endilega sú að þeir vinni þetta eða að þeir séu sætir :) heldur er liðsstjórinn þeirra algjör snilld :) Ég er búin að reyna að leita að myndum af honum á netinu en finn ekki en þessi maður er snilld...hann er eiginlega sköllóttur, frekar lítill og með bumbu og svo er hann með hvítt svitaband á hausnum og best af öllu þá er hann með BLEIKAN BANGSA sem lukkudýr hehe ég trúði þessu ekki þegar ég sá þetta...en hann er alveg frábær..fer inní miðjuna á hringnum í leikhléum og er greinilega aðal maðurinn :)





Annars er snjórinn mættur til okkar með tilheyrandi frosti purrrrrr kuldi, en versta er þó að ég þarf að leggja af stað hálftíma fyrr á æfingar vegna þess að umferðin gengur svo hægt í svona frosti þannig að ferðin tekur um 75 mín fyrir mig í staðin fyrir 40 mín. Setti inn mynd sem ég tók út úm gluggann...reyndar er snjórinn nú ekki eins mikill og var heima:)

jæja nóg í bili og segið endilega HÆ ef þið lesið :)
luvBerglind

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hejsan hej baunalingar ;)
vildum bara kasta kveðju á ykkur! vonandi náiði að horfa á leikinn í kvöld
kveðja ísey og lísa

Unknown sagði...

Hæ elskan...
Heyrðu eftir leikinn í gær var viðtal við einhverja stelpu í Bandaríkjunum og hún sagði frá leið til að geta horft á í gegnum netið...náði samt því miður ekki hvernig hún fór að því! Mikil hjálp í þessu..hehe
Knús til þín sæta...
Kv.Begga

Begga sagði...

hæ hæ yndislegu mæðgur :) Takk fyrir kveðjuna :) vonandi hafið þið það best heyri í ykkur mjög bráðlega :) knús og kossar Begga

Hæ Begga já við reyndum það en fundum síðan aðra betri síðu og gátum horft á leikinn takk samt fyrir ábendinguna :) luvBeggaÍris

Nafnlaus sagði...

bara kvitta :) hæhæ....
annars horfum vid a leikina i gegnum TV2 sputnik, erud tid med eitthvad snidugara?
og va snilld tessi lidstjori med Ungverjalandi... hann gerir greinilega gæfumuninn fyrir tetta lid

kvedja fra Fredericia,
Arny