fyndið með Dani þeir ákveða greinilega allt mjög tímanlega, eða allavega miðað við mig..Ég og Bjarni vorum að spá í að skella okkur í bíó í kvöld kl.21.00 og vorum að velta þessu fyrir okkur um 17. ég fer á netið að tékka hvaða myndir eru í boði og sé þá bara að allt er uppselt...þá eru bara allir búnir að ákveða langt áður að skella sér í bíó og panta miða á netinu. Heima þá bara ákveð ég mig yfirleitt með stuttum fyrirvara (nema myndin sé eitthvað rosa ný og vinsæl) og skelli mér síðan hálftíma áður( í mesta lagi) á myndina. Nei greinilega ekki alveg að virka hérna í DK, við semsagt þurftum að panta okkur miða til að fara í bíó á morgun. Nú skil ég hvað allir eru að tala um að Danir eru búnir að skipuleggja allt langt fyrirfram og geti ekki ákveðið neitt nema hafa dagbókina hehehe ætli ég endi ekki svona :)
FRÁBÆR sigur hjá mínum dömum á móti stjörnunni áðan, geggjað, enda vel mótiveraðar hohohohoh :)
Síðan er það að frétta að við Århus píur fengum 2 nýja leikmenn á þriðjudaginn. Önnur kemur frá Austurríki og er mest hugsuð sem varnarmaður en hin kemur á lánssamning frá Viborg, en hún spilar líka með Danska landsliðinu, er miðjumaður en getur spilað vinstri bakk einnig. Held þær eigi eftir að styrkja okkur, eða það hlýtur að vera hugsunin á bak við þessi kaup. Næsti leikur hjá okkur er á móti Esbjerg á miðvikudaginn.
Annars er þessi helgi bara búin að einkennast af áti, er búin að fara í 2 afmælisveislur, fös og lau :) Já og það í bæði skiptin til Viktoríu og þið sem þekkið Hröbbu vitið að þegar hún og kræsingarnar hennar eiga í hlut þá er ekki annað hægt en að borða vel yfir sig, en má nú ekki gleyma að hrósa Dagný en brauðrétturinn þinn og brauðið voru einstaklega góð gæskan :) Bjarni hrósaði því sérstaklega hehe :)
Hafið það best og njótið helgarinnar
kveðja Begga
4 ummæli:
hæhæ gaman að sjá þig í gær, ekki verra að horfa á Valsleik með Völsurum :)
kv.
árný
hæ skvís, sömuleiðis gaman að hitta ykkur hjónin :) hafið það gott og ÁFRAM VALUR :) knúsBegga
Hæ elskan! Takk fyrir falleg skilaboð. Knús,
Það var lítið krúsí mín, hafðu það best fallega, mundu að þú átt allt það besta skilið lovja Berglind
Skrifa ummæli