23 janúar 2007

Upprisa....

Alfreð sagði í fréttablaðinu í gær að Íslenska liðið hefði framið sjálfsmorð nú þá segi ég að þeir hafi risið upp frá dauðum í gær í leiknum á móti Frökkum djö...snilld var þetta og enn meiri snilld að Hrabba snillingur reddaði því að við gátum horft á leikinn með tilheyrandi öskrum og látum. Ég er að reyna að redda mér og mor&far miða á milliriðlana veit ekki alveg hvernig það endar virðist vera uppselt í allt. Í versta falli þá getum við vonandi séð alla leikina í sjónvarpinu en það væri bara svo klikkað að vera á staðnum jiiiii ég fæ bara gæsahúð.
meira var það ekki
Áfram Ísland og plíííííísssssss að við fáum miða :)
luvBegga

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Oj öfund. Mig langaði svo að horfa á leikinn, en nei. ekki hægt. Hvernig reddar maður svona hlutum??? á auðvitað bara að vera að læra fyrir próf en maður má fá smá pásu..
Vona að þú komist til germany.
Köbenkveðja.
Sigrún.

Begga sagði...

Hæ skvís sko það sem við gerðum var að fara inná sputnik.dk þar í progammer þar þarf maður reyndar að signa sig inn og borga 50 kr danskar fyrir 30 daga áskrift og þá áttu að geta horft á leikina :) Gekk allavega hjá okkur í gær..Maður þarf sko alltaf smá pásu í prófunum og leikirnir eru fín afsökun :) Gangi þér súper vel knús og kossar Begga

Nafnlaus sagði...

hey hvernig gengur að redda miðum á leikinn ég ætti kannski að bjóða gamla mínum og við skellum okkur með
það yrði bara gaman
kveðja Elín Rós

Nafnlaus sagði...

getið hringt í þetta númer:

0049 5201818260

þetta er miðasalan í Halle þar sem ísland spilar á móti pólverjum 25 og slóveníu 27. uppselt á hina í dortmund held ég.

Begga sagði...

hæ sys það gengur ekki nógu vel að redda miðum en maður heldur í vonina :) Við bjóðum samt upp á leikina í sjónvarpinu hérna á Drevej knús og kossar á línuna :) luvBerglind

Takk fyrir ábendinguna anonymous ég læt pabba prufa það kv.Begga