26 janúar 2007

Fréttir fréttir

Kellan fór í atvinnuviðtal í morgun sem tók einungis TVÆR KLUKKUSTUNDIR ég hélt að fyrsta viðtalið væri bara svona létt spjall aðeins að heyra í mér og svona, eða það talaði konan um í símann þegar hún hringdi í mig, en áður en ég vissi af átti ég að byrja á mánudaginn og ég veit ekki hvað og hvað...en ég stoppaði það nú af og byrja ekki fyrr en mánudaginn 5.feb þá fer ég í svona læri þ.e. fylgi hjúkku eftir. En já allavega þetta er starf í heimahjúkrun og ég fæ að starfa sem hjúkrunarfræðingur en er alltaf með annarri með mér sem mér finnst nauðsynlegt þar sem ég er nú ekki altalandi dönsku og hvað þá allt hjúkkumál á dönsku. Mér lýst bara nokkuð vel á þetta, þarf bara að fara að skrifa niður orðalista :) til að vera alveg viss um allt sem ég gæti þurft að segja...jiii sá listi verður eflaust mjög langur :) Þessi vinna er líka rosa góð fyrir mig vegna þess að þær hringja í mig þegar þeim vantar og ég get sagt já eða nei þannig að ég er ekki föst ákveðna daga, sem er algjör snilld uppá ef gestir koma og þess háttar.

Svo eru mamma og pabbi komin til okkar sem er æði og eru þau einmitt að koma og ætlum við að kíkja á útsölur áður en þær hætta.
Hafið það sem best elskurnar
luvBegga

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Innilega til lukku með vinnuna :D

kveðja
Magga og bumbudrengurinn

Anna sagði...

Hæ hæ
Til hamingju með að vera komin með vinnu, gott að geta loksins farið að vinna !! Ég þarf að fara að drífa mig að sækja um vinnu..... þarf að heyra í þér hvernig þetta viðtal var ;) hehe
kv. frá Norge

Nafnlaus sagði...

Hæ skvís, til hamingju með vinnuna frábært ;) Verslið nú ekki frá ykkur allt vit hehe, knús Guðbjörg G

Nafnlaus sagði...

AAAAA! Það var mikið!!! :) Auðvitað ert þú bjútíið!! Elsku snúllan mín, hvað er að frétta bara fara að vinna og alles! Hvernig líst þér á þetta allt saman? Biddu mömmu þína að koma með smá sól heim, það er svo grátt hér allt saman! og svo ætla ég að heimsækja hana bráðum svo það er eins gott að hún kaupi gúmelaði í fríhöfninni :)

Þú ert rosalega dugleg Berglind í alvöru, það er ekki auðvelt að rífa sig upp og flytja til útlanda og vera til þar. Þannig að þegar þú kemur "heim" þá ertu víðsýnni og reynslunni ríkari.

OMG nú tala ég eins og pipruð og eldgömul frænka

ÁFRAM ÍSLAND!
hm

Nafnlaus sagði...

Hæ elsku Berglind til hamingju með vinnuna ég veit þú rúllar þessu upp eins og öllu sem þú tekur þér fyrir hendur.

Þið vitið´hvaða stærð ég nota!!!

Sumir að verða 40 á morgun og við gömlu á leið í sumarbústað.

bið að heilsa mor og far og þar með er dönskukunnáttu minni lokið elska ykkur öll ástarkveðja frá öllum hér þín eina sanna systir Elín Rós

Nafnlaus sagði...

vá til lukku með jobbið sæta
við segjum bara "tu tu"
söknum þín...
knús frá íseyju og lísu

Begga sagði...

Takk elsku Magga mín :) knús til ykkar Begga

Já það er sko gott að vera komin með vinnu vona bara að þetta eigi eftir að ganga vel :) heyrumst sem fyrst Anna knús og kossar Begga

Takk Guðbjörg :) hafið það best og gangi þér vel knús Begga

Hæ elsku Hulda :) já bara búin að fá vinnu og vonandi á það eftir að ganga vel :) lýst bara ágætlega á þetta. Ég skilaði þessu til mömmu og hún lofaði að kaupa nóg af gotteríi :) Takk elsku Hulda mín :) hafið það rosalega gott knús og kossar til ykkar allra luvBerglind

Takk elsku sys ég vona það svo sannarlega...hehe við bíðum eftir að þú mætir hérna út til okkar þá geturðu sko sjálf séð um innkaupin :) Til hamingju með Bigga vonandi höfðuð þið það rosalega gott knús og kossar til ykkar allra lovja

Takk elsku sætiu ísey og Lísa hafið það gott dúllur og sakna ykkar luvBegga