01 janúar 2007

Árið 2006 búið

Mér finnst árið 2006 búið að vera ótrúlega viðburðaríkt fyrir mig, ekkert smá mikið búið að gerast :
  • Ég varð 25.ára. Hélt enga stórveislu, en átti frábæran dag með frænkum mínum og Bjarna.
  • Útskrifaðist úr Háskólanum, ekkert smá fegin því, og var því að sjálfsögðu fagnað með viðeigandi veislu og partýi.
  • Varð deildarmeistari með Val, unnum ÍBV 2-0 í eftirminnilegum leikjum. Fyrsti titillinn (svona fyrir utan Rvík.meistarar)með Val síðan 2000, þannig að hann var kærkominn.
  • Tókum þátt í Evrópukeppninni með Val og stóðum okkur rosa vel, komumst í undanúrslit (eftir að hafa unnið lið frá Grikklandi og Sviss) þar sem við töpuðum fyrir Constanta frá Rúmeníu. Spiluðum rosalega góðan leik heima þar sem við unnum með 7 en töpuðum því miður leiknum úti með 12.
  • Flutti út til útlanda í fyrsta skipti á ævinni, Danmörk varð fyrir valinu þar sem ég og Bjarni ákváðum að reyna fyrir okkur, Bjarni minn með Silkeborg og ég með Århus - þ.a.l. skipti ég í fyrsta sinn um lið á ævinni.
  • Fór alveg ótrúlega oft til útlanda árið 2006, 2xRúmenía, Grikkland, Makedónía, 2xHolland, Frakkland, Ungverjaland, Sviss, Spánn, 3 x að heimsækja Bjarna minn í DK áður en ég flutti, svo auðvitað til Íslands eftir að ég flutti út.
  • Við vorum hársbreidd frá því í Landsliðinu að komast áfram á EM, spiluðum á móti Makedóníu en töpuðum. Fórum síðan til Rúmeníu í undankeppni HM, en komumst því miður ekki upp úr riðlinum.
  • 2 af mínum bestu vinkonum eignuðust lítil yndisleg kríli, Lísa og Heiðar eignuðust Ísey og Anna og Örvar eignuðust Kára. Svo eignaðist systir hans Bjarna og Fannar kærastinn hennar hana Elísabetu sem er algjör prinsessa og hetja.
  • Ég er auk þess búin að kynnast fullt af nýju fólki, farin að bulla dönsku, keyri 700 km á viku, elda eins og mér sé borgað fyrir það, byrjaði að blogga 2006. Auðvitað gerðist margt fleira, sumt rosa skemmtilegt annað minna skemmtilegt. Þetta eru samt svona hápunktarnir held ég.

Árið 2007 verður ekki síður viðburðaríkt, enda nóg búið að plana nú þegar. Allavega 3 brúðkaup í sumar og svo býður mín og Bjarna eitt skemmtilegt seinni hluta ársins.

Gleðilegt nýtt ár, takk fyrir gömlu góðu...hafið það sem best elskurnar

luvBerglind

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ elskan mín...
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla :)
Vá aldeilis búið að vera viðburðarríkt ár hjá þér! :D
Það er bannað að gera mann svona forvitinn...eitthvað skemmtilegt sem gerist...hmmm fáum við ekkert meira að vita ..hehe
Hafðu það gott sæta mín...knús frá Beggu

Nafnlaus sagði...

Elsku Berglind gangi ykkur vel í leiknum í dag. kærleiks kveðja mamma og pabbi.

eyglo sagði...

Hæ hæ og gleðilegt ár! :) Já ég er ferlega forvitin að vita hvað gerst seinni hluta ársins??

Begga sagði...

Hæ Begga mín Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir öll gömlu :) híhí kannast við að vera forvitin :) hafðu það gott luvBegga

Takk elsku m&p

Hæ eygló mín, gleðilegt árið og takk fyrir gamla...knúsBegga

Nafnlaus sagði...

eftir 9 mánuði er kominn seinni hluti ársins!! Hvenær ætlarðu að segja okkur fréttirnar??? ;oþ öh eða kannski grunar mig hvað það er, en ekki vera að draga það of lengi að segja okkur frá þessu skemmtilega!! ;o)

Begga sagði...

híhí það giska allir á það sama :)Ég hélt þið vissuð að ég verð eflaust sú síðasta til þess knúsBegga

Nafnlaus sagði...

jæja, nú get ég ekki einbeitt mér næstu mánuðina. Viltu hafa það á samviskunni.... ha!!!!! :)