Já það er eintóm gleði á okkar heimili í dag :) Silkeborg vann í dag 2 - 1 á móti Esbjerg eftir að hafa lent 1 - 0 undir og mistekist að skora úr vítaspyrnu þannig að það leit ekkert sérstaklega vel út hjá þeim, EN loksins tókst þeim að sigra.
Gleðin hjá okkur er þó aðallega vegna þess að VALUR VARÐ ÍSLANDSMEISTARI Í DAG jibbí til lukku með það strákar og allir valsmenn. Ekkert smá frábært. Við horfðum á leikinn á netinu og var maður nokkrum sinnum frekar stressaður um að Haukar myndu sigra en sem betur fer þá gerðist það ekki. Flott að koma með titil inn í nýja glæsilega valsheimilið :)
annars mest lítið að frétta af okkur. Ég er komin með vinnu heima á Íslandi í sumar og get ekki sagt annað en ég hlakki voðalega mikið til þess að byrja að vinna. Vonandi bara að maður muni eitthvað síðan úr náminu, en það hlýtur að rifjast fljótt upp.

Síðan 2 afmæliskveðjur, fyrst til Glingló minnar sem átti afmæli 17.apríl...Innilega til hamingju Eygló mín, vona að afmælispartýið hafi heppnast voða vel..hlakka til að hitta þig í byrjun maí og knúsa þig sæta...
og svo átti Kristófer litli krúsímús 2 ára afmæli 20.apríl, ég get ekki beðið eftir að knúsa hann þegar ég kem heim og sjá hvað hann er orðinn ótrúlega duglegur og víst rosa efnilegur markmaður :) þetta er ekkert eðlilega fljótt að líða allt saman...

Valsgleði kveðjur frá DK
Begga
3 ummæli:
Hei verðum við saman í matsalnum í sumar? Stutt svo á æfingar?
kannski ég hitti ykkur líka í matsalnum. Til hamingju Valsmenn !! Hlakka til að hitta þig í sumar skvís !! Klem fra Norge
Því miður verð ég í matsalnum á borgó en við allavega borðum sama matinn þó við séum á sitthvorum staðnum :) en stutt þaðan líka á æfingar og vááá mig dreymir um heita pottinn "okkar"...LJÚFT LÍF EKKI SATT??
hlakka sömuleiðis mikið til að hitta þig sæta mín knus Begga
Skrifa ummæli