10 apríl 2007

Skemmtilegir páskar búnir

Fjölskyldan hans Bjarna fór í dag frá okkur eftir mjög skemmtilega helgi. Þau komu á fimmtudaginn og fórum við öll saman á leikinn hjá Bjarna á Parken á móti FCK. Sá leikur endaði 3 - 1 fyrir FCK eftir að Silkeborg komst 1 - 0 yfir. Við fórum einnig á leikinn í gær þar sem B og félagar kepptu á móti Álaborg og þvílíkur markaleikur, heil 10 mörk skoruð !!! en því miður aftur tap hjá SIF 6 - 4, eftir að þeir komust 2 - 1 yfir, en svona er þessi bolti víst, ekki allt eins og maður óskar sér.



Það var margt brallað meðan þau voru hjá okkur, við fórum t.d. í fótboltagolf sem ég og Ellert unnum eftir að ég fór holu í höggi :) haha maður verður að minnast á það auðvitað, enda það eina góða sem ég gerði, Ellert sá um að klára hinar holurnar fyrir okkur :) fórum einnig í minigolf, út að borða, málverkasýningu hjá einni í liðinu mínu, svo var auðvitað tekinn verslunarleiðangur í Århus, við spiluðum mikið og svo lét ég rústa mér nokkrum sinnum í Buzz dííí hvað ég get orðið pirruð í þessum leik, keppnisskapið er alveg að fara með mig stundum !!!



Við borðuðum að sjálfsögðu yfir okkur öll kvöld, enda eiga páskarnir að vera þannig, en þau komu færandi hendi með íslenskan fisk, læri og lambasneiðar sem rann allt mjög ljúflega niður. Við fengum íslenskt páskaegg sent að heiman frá m&p og svo komu þau með annað þannig að það var nóg páskaegg fyrir alla :)



Þessi helgi var alveg æðisleg í alla staði, fyrir utan að veðrið hefði mátt vera betra - bara ekta íslenskt veður eiginlega allan tímann, en já það var yndi að hafa þau enda alltaf svo gaman að fá gesti til sín.



Svo smá að handboltanum en tímabilið klárast vonandi hjá okkur Århus píum um næstu helgi en þá spilum við umspilsleik nr. 2 á móti Sonderjyske, en við unnum fyrri leikinn núna á Sunnudaginn, þar sem ég fékk að spila 25 mín. Leikurinn var arfaslakur af okkar hálfu og vonandi að við náum að rífa okkur upp og spila almennilega.


Læt nokkrar myndir fylgja með og set síðan restina inn sem fyrst á læstu myndasíðuna mína.


ein afmæliskveðja svo í lokin en hún Lilja mín átti afmæli 7.apríl. Innilega til hamingju skvís, ég vona að dagurinn hafi verið súper góður og þú hafir haft það æðislega gott, sakn og knús til þín sæta mín.

Ég vona að þið hafið haft það jafn gott og við um páskana
luvBÍH

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir kveðjurnar sæta mín :)
kyss og knús,
lilja