Já ótrúlegt en satt þá er síðasta leiknum hjá okkur í Århus lokið en við spiluðum í gær seinni leikinn á móti Sonderjyske og unnum 29 - 25, við höldum því sæti okkar í TOMS ligunni næstu leiktíð. Við tekur 10 daga frí hjá okkur sem er kærkomið og vona ég bara að veðrið verði jafn gott næstu 10 daga og það hefur verið núna um helgina, eða kringum 20°C :) Ég verð allavega að taka mig virkilega á ef ég ætla að ná henni Hröbbu minni sem tók heldur betur á því á fimmtudaginn eins og hún skrifar um á síðunni sinni :)
Eftir leikinn í gær fór ég heim með Árný og Fannari til Fredericia til að sjá nýju flottu íbúðina þeirra. Bjarni kom síðan til okkar frá Silke og var okkur boðið í rosalega góðan mat sem ég á pottþétt eftir að reyna að elda e-n tíma :)
Síðan er það leikur í dag hjá Bjarna á móti Viborg. Viborg er í 10 sæti með 22 stig en Silkeborg í sætinu fyrir neðan með 12 stig. Það segir sig því sjálft að þessi leikur er afar mikilvægur því EF þeir sigra Viborg í dag og síðan Vejle á miðvikudaginn og Viborg tapar þá, þá eru einungis 4 stig í Viborg...en það er alltaf þetta stór EF sem þarf að hafa í huga, en krossum fingur, vonum það besta og síðan kemur þetta í ljós.
Þið hafið örugglega flest horf á fótboltaleik eða heyrt um leik þar sem allsber karlkyns áhorfandi hleypur inn á völlinn. Yfirleitt er þá myndavélunum beint eitthvað annað og 10 verðir hlaupa á eftir viðkomandi til að koma honum sem fyrst burt af vellinum. Í gær vorum við semsagt að horfa á restina af leik í dönsku deildinni þegar stelpa svona ca.25 ára hleypur inn á völlinn í G-streng einum klæða voða ánægð með lífið og júllurnar náttla á fleygiferð. Hún fékk að sjálfsögðu mikið klapp og blýstur frá áhorfendum og ekki nóg með það heldur þá hljóp eiginlega enginn vörður á eftir henni og myndavélin var límd við hana allann tímann og atvikið marg endursýnt eftir leikinn.....já sú fékk athygli og fær eflaust næstu vikur :) Spurning um að prufa þetta á leiknum hjá Bjarna á eftir hver veit nema þetta kveiki í Silkeborg, allavega hafði það góð áhrif á ónefndan markmann í ÍR hér um árið þegar hann gekk óvart inn í vitlausan klefa í valsheimilinu og þ.a.l. inn á leikmann í mfl.kvk Val sem var allsber, herma fréttir að hann hafi aldrei spilað jafn vel....hehehehe niiiiiii ég held ekki..
Hafið það best og það eru allir velkomnir í heimsókn til okkar í veðurblíðuna
knús á línuna Begga
15 apríl 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
hahaha ég gleymi aldrei svipnum á hrappnum þegar hann kom loks í réttann klefa eftir að hafa rétt kíkt á ákveðinn markmann:) hann talar enn um þetta atvik og hann spilaði einn sinn besta leik í lengri tíma.. hahaha
Kveðja
Einar þýski
hæhæ og takk fyrir sidast :)ædislegt ad fa ykkur i heimsokn og skemmtilegt ad sja sidasta leikinn tinn fyrir Århus.
Hilsen,
árný
hæ hæ
Jæja styttist í Íslandsheimsókn eða hvað?
Vona innilega að þú komir það er engin veisla án þín. Þú manst að móðursystir á alltaf að halda ræðu eða vera með skemmtiatriði.
Hlakka til að hitta þig Berglind mín þín systir
nei Einar þetta móment gleymist seint :)
Takk sömuleiðis árný mín, æði að koma til ykkar og sjá ykkur og flottu íbúðina ykkar knús
Jebbs mín kæra ég kem að sjálfsögðu og hlakka rosalega mikið til....knús og kossar
Skrifa ummæli