17 júlí 2006

Hvað segirðu gott?

Hæ fólkí fólkið mitt
Góð helgi að baki þar sem ýmislegt var brallað :) Reyndar byrjaði hún ekkert spes þar sem ég fann vel kramda pöddu í rúminu okkar sem ég hafði legið á :/ Ég HATA pöddur ég er meira að segja hrædd við fiðrildi (til saga á um það)...vaknaði semsagt með þessa pöddu undir mér ojjjjjjjjjjjj.
En það var frábært veður um helgina og ég fékk það að sjálfsögðu í bakið - bókstaflega sko því ég brann á bakinu. Ég var jafn rauð og tómatur og með þvílíkt far eftir hlýrabolinn. En þið þurfið ekkert að öfunda mig af sólinni því það er nú bara heilsíðu grein í mogganum í dag um skaðsemi þess að liggja í sólbaði, sólin getur valdið krabbameini, hrukkum, breytt áhrifum lyfja, sólarofnæmi, sjúkdómar versna og ég veit ekki hvað og hvað, þannig að verið bara glöð að vera heima í veðrinu sem er þar því sólbrúnka er merki um skaða!!! En ég verð samt að segja að þó að sólin geti valdið öllum þessum skaða þá bara líður manni miklu betur á sálinni að vera í hita, geta verið ÚTI og auk þess er miklu meira hægt að gera í góðu veðri og svo lítur maður bara miklu betur út....en nóg um það snúum okkur aftur að helginni.
Við skelltum okkur á ströndina á föstudaginn það voru ekki margir bæði þar sem það var ekki komin frídagur hjá vinnandi fólki og líka þá voru nokkur ský á lofti en mér fannst það súper gott :) svo næs að liggja bara á teppi í góðu veðri og hlusta á góða tónlist :)
Ég skellti mér líka í smá búðarleiðangur um helgina meðan Bjarni var á æfingu og gekk það mjög vel - fór í HM og kom út með 6 flíkur og var inni í 20 mín :) ótrúlegt hvað maður getur alltaf fundið sér eitthvað þarna og HM í Silkeborg er meira að segja ekkert spes.
Svo er kellan orðin svaðalegur kokkur þó ég segi nú sjálf frá :) Um helgina eldaði ég rosa kjúllarétt og svo í gær skellti ég í eitt stykki Pizzu - OK ég viðurkenni alveg að pizzan lítur ekkert sérstaklega vel út (er óbökuð þarna) en hún smakkaðist líka svona vel bara alveg jafn vel og pizzurnar sem maður getur fengið hérna - því það er hvorki Dominos eða Pizza Hut hérna í Silkeborg þannig að pizza ala Begga er málið :)
Við ákáðum síðan á sunnudaginn að skella "okkur" í golf, fórum á nýjan völl rétt hjá Himmelbjerget þannig að núna rata ég þangað og get túristað ykkur. Golfið gekk fínt hjá kallinum og ég var rosa caddy.
Svo fer að styttast í að ég byrji að æfa með nýja liðinu mínu, vika þangað til æfingar byrja og ég get ekki sagt annað en mig kvíði rosalega fyrir. Ég vona bara að ég lifi þetta af.
Ætla síðan í lokin að koma með smá info um framfarirnar sem hafa orðið hjá mér síðan ég kom hingað :
Lesa dönsku : Ja myndi segja að ég væri komin með 3 + í framfarir
Skilja Dönsku : 1 + í framfarir skil alveg þegar ég fer útí búð og tala við eina manneksju en ef margir eru að tala saman eða tala mjög hratt þá bara dett ég strax út
Tala dönsku: +1/2 ekki nógu góðar framfarir ég er bara ekki nógu þorin !!!
Kokkur : hehe ég allavega reyni :) + 3 segjum það bara.
jæja annars eitthvað að frétta?
Hafið það gott bæjó
Berglind

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ, Það er ótrúlega gaman að lesa það sem þú skrifar... nú er bara að fá sér einn öl og finna næsta dana og æfa sig í að tala. ;)
Good look baby
Hilsen Sigurveig

Nafnlaus sagði...

hæ elskan mín...gaman að heyra að þið séuð að njóta ykkar þarna úti :) og já það er ótrúlegt hvað það er frábært að hafa gott veður..svo gaman að bralla eitthvað úti þá..
Ég sé aldrei síðustu orðin í hverri línu..veit ekki hvort það sé bara þannig í minni tölvu...en ég er orðin ansi góð í að fylla upp í eyðurnar :)
Danskan kemur örugglega fljótlega Begga mín þegar þú ferð að æfa og umgangast dani meira...þú verður örugglega ekki lengi að ná henni...
Hafið það ofsa gott elskurnar...Knús frá Beggu G

Begga sagði...

Hæ hæ sigurveig mín :) já ég held ég fari bara að ráðum þínum vonandi verður stutt í næsta partý með liðinu mínu :) hafðu það gott kossar og knús skvísí luvBegga

Hæ Hæ Begga skvís :) hmmm ég skil ekki með að þú sjáir ekki síðustu línurnar vona að það sé ekki þannig alltaf !!! Ég sé allavega allt í tölvunni minni. Hafðu það súper gott skvísan mín kossar og knús bið að heilsa luvBegga

Nafnlaus sagði...

Hæ skvís
ég held ég myndi frekar vilja taka áhættu hér heima með sólina heldur en að hafa endalausa rigningu og skýjað :( Get alveg viðurkennt það að ég öfunda ykkur smá af sólinni !!
Ég tek undir orð sigurveigar um að fá sér bara öl og þá kemur danskan... allavega myndi ég gera það hehe :)
Hlakka til að koma í heimsókn og dæma um hversu góður kokkur þú ert orðin :)
hafðu það gott skvís og bið að heilsa Bjarna
kv. Anna og bumbi (sem fer að drífa sig í heiminn)

Nafnlaus sagði...

hæpæ
Mér finnst þú standa þið supervel í eldamennskunni :) og danskan kemur fljótt þegar þú neyðist til að tala við stelpurnar í liðinu (ég fór ekki að tala fyrr en ég byrjaði að æfa og það tók 2 ár). Ég er alveg orðin steikt á þessarri sól og væri alveg til í smá rigningu en það er víst ekki von á því næstu vikuna...34°C í dag , púfff.

knús frá germanyunni
Eivor

Nafnlaus sagði...

hehe þú ættir kannski að koma hingað á Mývatn í 3 m háu og 2 m breiðu mýskýjunum sem eru hér...fyrst þú ert svona mikil pödduáhugamanneskja ;) kv. Óli

Nafnlaus sagði...

Hæ elsku Berglind
Gaman að sjá að þú ert að plumma þig í eldhúsinu.
Héðan er allt gott að frétta það er bara nokkuð gott að vera komin í kuldann á Íslandi. Við biðjum allar að heilsa og erum farnar að safna fyrir Danmerkurferð ;)
Kveðja Elín Rós

Begga sagði...

Hæ Hæ Anna og bumbi :) Ég skal sko lofa þér því að þú sveltur ekki þegar þú kemur hingað í heimsókn :) Ég hlakka svo til þegar bumbulíus kemur í heiminn held að það verði strákur :) Hafðu það ofsa gott skvísí knúsogkram luvBegga

Hæ hæ Eivor ég vona svo sannarlega að danskan komi fljótt ég verð nú að geta sagt eitthvað þarna í markinu :) já það mætti alveg koma einn rigningadagur - þarf nefnilega að fara að taka til :) það virðist sitja á hakanum þegar sólin skín :)knúsBegga

Hæ hæ Óli ég segi bara pent nei takk :) mýflugurnar eru nú það allra versta því þær fara gjörsamlega upp um allt og inní allt, nef, augu, eyru og veit ekki hvað - ég myndi pottþétt hlaupa úti með flugnanet þarna luvBegga

Hæ Elsku systa mín ooo svo gaman að heyra frá ykkur skvísum ég sakna ykkar ofsa mikið og verið nú duglegar að safna svo þið komist sem fyrst til mín :) Trúi því að það sé ágætt að koma heim í svala golu og heima er alltaf best :) hafið það gott yndislega systir og frænkur knúsogkram Berglind