30 mars 2007

Vorið er komið....


Vá hvað allt verður mikið skemmtilegra þegar veðrið er gott, en hér er búið að vera kringum 10 - 15°C og sól alla vikuna og á víst að vera allavega næstu 10 - 14 daga. Við vonum að það standist því við fáum gesti næsta fimmtudag, en fjölskyldan hans Bjarna kemur þá. Það er samt ekki allt gott við að góða veðrið sé komið þar sem helv...stóru hnulla flugurnar eru mættar á svæðið ásamt köngulónum ojjjjj úff þoli ekki þessi dýr, en samt lætur maður sig hafa það að rölta um úti á bolnum og smella sér á kaffihús til að njóta góða veðursins. Verður vonandi stutt í að maður mæti á ströndina til að worka tanið, ekki veitir af...

Helgin verður eflaust róleg þar sem Bjarni á leik á sunnudaginn á móti Randers. Við förum reyndar í mat í kvöld til eins stráks í liðinu hans Bjarna og kærustunnar hans þannig að eitthvað verður nú brallað um helgina :)

Langaði bara að segja hæ og eigið góða helgi

luvBÍH

28 mars 2007

Partý, kökuböð og afmæli :)

Já hann Bjarni minn á afmæli í dag, stórafmæli 25.ára kallinn og erum við heldur betur búin að halda upp á það :) Byrjuðum á laugardaginn þegar hann og Hörður héldu saman upp á afmælið sitt heima hjá Herði. Síðan buðum við nokkrum í kökuboð á mánudaginn, ég bakaði nokkrar kökur og má segja að við höfum étið á okkur gat, sem er bara gott :) og síðan er alvöru afmælisdagurinn í dag, þannig að það má segja að það sé þriðji í afmæli :)


Það var svaka stuð í partýinu á laugardaginn, ekkert svo margir sem komu en alveg mátulega margir og skemmti ég mér allavega konunglega. Bjarni og Hörður fengu skemmtilega gjöf frá félögunum í liðinu en þeir gáfu þeim gullfisk sem við eigum víst að skiptast á að hafa aðra hverja viku. Bjarni ákvað að skíra hann "góðann daginn, góðann daginn" en ég held hann sé kallaður eitthvað annað af Herði :) Hérna til vinstri eru B og H með gullfiskinn.

Þeir fengu einnig geisladiska með e-um dönskum slögurum, eitthvað sem við eigum eflaust eftir að hlusta mikið á...







Viktoría, Hrabba, Viktor og Silkeborgargengið komu síðan í kökur á mánudaginn. Hrabba og co gáfu Bjarna Buzz í afmælisgjöf sem er tónlistarspurningaleikur í playstation...við tókum að sjálfsögðu eina keppni sem Bjarni og "ég" unnum, þ.e. ég fékk að sitja við hliðiná og fagna þegar hann gerði rétt, ég er nefnilega alveg lost þegar kemur að tónlist!!!

Síðan í lokin er hérna mynd af afmælisbörnum dagsins, en Tinna á líka afmæli í dag, til hamingju með það Tinna mín knús og kossar til þín frá okkur.

Ég setti inn myndir úr partýinu og frá afmæliskökuboðinu. Þær eru hér til hægri í Ýmsar myndir/læstar myndir og enn og aftur ef þið hafið áhuga á að skoða þá bara senda póst beggah@hotmail.com

Hafið það gott

luvbíh

23 mars 2007

Frí helgi í Silkeborginni....

Aftur komin helgi, ég skil ekki í þessu hvað tíminn líður...en þessi helgi verður skemmtileg þar sem bæði ég og Bjarni erum í helgar fríi og ætlar hann og Hörður að halda smá gleðskap á morgun í tilefni þess að Hörður á afmæli á morgun og Bjarni á miðvikudaginn. Tinna kærastan hans Bóa á einnig afmæli á miðvikudaginn þannig að 3 Íslendingar af 6 hérna í Silkeborg eiga afmæli núna á næstu 5 dögum :)


Við vorum að keppa á miðvikudaginn á móti Viborg, en þær unnu t.d. Champions League í fyrra, leikurinn var fínn framan af en undir lokin keyrðu þær yfir okkur og unnu 21 - 30.

Nú er tímabilið hjá okkur næstum búið bara 2 umspilsleikir eftir og fara þeir fram 8. og 15. apríl og spilast á móti liðinu sem endar í 3. sæti í fyrstu deild.

Annars eru komnir nýjir leikmenn í Århus, byrja reyndar á næsta tímabili en það er Pólsk skytta og svo 2 leikmenn frá Suður Kóreu, línumaður og hægri skytta. Það má því segja að liðið sé ansi fjölþjóðlegt því það eru leikmenn frá 6 löndum í liðinu :) Aldrei að vita nema maður læri eitthvað meira en dönsku hehe :)


Bjarni og félagar náðu í þrjú stig á laugardaginn, hann bloggaði, aldrei þessu vant, og skrifaði um leikinn og setti meira að segja inn myndir, kíkið á það hér.

5. apríl koma síðan foreldrar hans Bjarna, bróðir hans og kærasta í heimsókn og verður það ÆÐI. Þau vænta þess að við séum með dagskrá, en ég er allavega búin að skrifa lista þið getið svo bara valið :) Vonum bara að veðrið haldist eins og það er, búið að vera í kringum 10 °C og sól, þá getum við allavega spókað okkur um úti.

Svo afmælisbörn mánaðarins....til hamingju elsku Ágústa mín með afmælið 15.mars vonandi að þú sért búin að jafna þig á veikindunum. Hlakka til að knúsa þig þegar ég mæti heim...Hafðu það best skvísí


Annars bara líf og fjör þangað til næst verið endilega dugleg að segja HÆ mér þykir það svo ofsa gaman....

20 mars 2007

Helga Kamilla

Þetta er flottasta Poppvél sem ég hef nokkurn tíma séð, ummm hvenær kemurðu til Danmerkur til að gefa mér popp. Ég sakna þín og ykkar allra mikið. að sjálfsögðu fékk þessi poppvél verðlaun fyrir að vera LANG FLOTTUST.

annars vorið er komið og gleðin með því.

11 mars 2007

Síðan síðast...

..þá er ég búin að :


  • Fara til Tékklands og spila þar 3 leiki, ferðin var mjög fín alltaf rosa gaman að hitta stelpurnar, en hefði mátt ganga betur handboltalega séð. Það verður hins vegar bætt úr því í sumar með 6 vikna æfingatörn.

  • Missa af flugi frá Frankfurt til Köben, það reddaðist samt sem betur fer á endanum.

  • Fara í surprise afmæli hjá Viktori sem varð þrítugur 6.mars. Hrabba bauð fullt af fólki á Römers sem er veitingastaður í Århus, í mat og drykk ekkert smá flott og gott. Viktor grunaði ekkert og heppnaðist allt alveg súper vel.

  • Keppa rosa mikilvægan leik á móti Horsens, sem skar úr um hvort liðið þurfti að fara í umspilsleiki um laust sæti í efstu deild á næsta ári. Sá leikur tapaðist því miður, ótrúlega fúlt og svekkjandi.

  • Taka þátt í að skipuleggja afmælispartý sem helmingurinn af Íslendingunum í Silke ætla að halda bráðum.

og núna bíð ég spennt heima eftir að klukkan verði 3 því þá spilar Bjarni og félagar ÓTRÚLEGA mikilvægan leik á móti einmitt Horsens og einsgott að þeir fari með sigur af hólmi því annars verður heimilislífið hjá okkur hjúum ekkert sérstakt næstu daga og þá ekki beint mikill kærleikur til Horsens!!!!


annars bara bið að heilsa
BÍH

26 febrúar 2007

Eurovision


var að horfa á eurovision áðan, jebb svoldið sein en allavega fékk bara endurminningu frá Makedóníu ferðinni með landsliðinu í maí í fyrra, fannst bara Veigur sjúkró vera komin uppá svið að syngja Torrnero (eða hvað það heitir) og Rakel að taka eurovision syrpu..hehe algjör snilld
setti inn myndir frá Makedóníu hér þurfið bara að senda mail ef ykkur langar að kíkja á þær.

24 febrúar 2007

home alone

ég er orðin rosa hagsýn húsmóðir, bakaði brauð úr ýmsu úr ísskápnum í staðin fyrir að þurfa að henda því endanum jiiii ég á ekki til orð yfir mér og ekki nóg með það þá bakaði ég 3 þannig að ég frysti 2!!!
Áður en ég fór hingað út var ég núll kokkur, vinkonur mínar höfðu miklar áhyggjur af mér (sem og ég sjálf) og gáfu mér fulla möppu af uppskriftum sem þær söfnuðu saman fyrir mig - þær hafa hjálpað mér mikið.
ég er ekki frá því að ég komist bráðum á "dass" stigið mikla, hendi dass af hinu og þessu eftir smekk :). Já ég kem sjálfri mér á óvart.
tók að sjálfsögðu mynd af brauðinu mínu til að sýna ykkur og sanna :)
annars stóð það í öllum helstu fjölmiðlum að kellan hefði sett 5 stykki í síðasta leik, já maður skellti sér í skyttuna og slummaði nokkrum í skeytin, já loksins sá e-r þjálfari ljósið og setti mig þar sem ég á heima...ef þið trúið þessu ekki þá getið þið séð það hér og þar í blöðum í DK og eins og þið vitið þá ljúga blöðin aldrei !!!
er bara home alone, kallinn farinn til spánar og ég læt mér leiðast heima á meðan, fer reyndar til Tékklands á miðvikudaginn og hlakka ofsalega mikið til að hitta stelpurnar.
BÍH

22 febrúar 2007

Snjókorn falla, á allt og alla...

Ég skal viðurkenna að núna er smá snjór komin til Danmerkur, en það er ekki "snestorm" úti eins og danirnir segja. Það þarf nú að vera smá vindur til að hægt sé að kalla það storm hehe :) Æfingu var frestað í dag vegna veðurs, nokkrar búðir niðrí bæ voru lokaðar vegna veðurs og já það liggur bara ýmislegt niðri vegna veðurs.
Ég tók þessa mynd í morgun og eins og þið sjáið þá er enginn stormur úti :) ok allavega er enginn stormur hjá okkur í Silkeborg...var einmitt að horfa á fréttirnar og það er víst slæmt annars staðar hehe :) alltaf logn í silkeborginni greinilega

Spiluðum í gær á móti Holstebro unnum 21 - 34 í mjög svo sérstökum leik. Holstebro spilaði meirihluta leiksins með 7 útileikmenn, tóku sem sagt markmanninn útaf, þetta gekk ekkert allt of vel hjá þeim en heldur ekkert spes fyrir okkur því í hvert skipti sem við unnum boltann skutu leikmenn strax á tómt markið og fóru all mörg skot framhjá eða í stöng, greinilega ekki eitthvað sem hefur verið æft nóg þ.e. að skjóta yfir endilangann völlinn hehe :)

Bjarni er síðan á leið í æfingaferð á laugardaginn til Spánar og verður í viku, fer bara úr snjónum í sólina. Vonandi að hópurinn nái að þjappa sér saman því fyrsti leikurinn er síðan 13.mars eða viku eftir að þeir koma heim.

nóg í bili
Begga

21 febrúar 2007

Koma svo ooo so...

úff held ég gæfi nánast allt til að vera heima í kvöld og styðja stelpurnar til sigurs á móti Haukum...gæfi samt enn meira fyrir að fá að taka þátt en svona er þetta stundum :)

good luck girls þið takið þetta

18 febrúar 2007

Bolla Bolla

Ég elska bolludaginn, þá borða ég BARA bollur og ég lýg ekki, borða þær í morgun-, hádegis- og kvöldmat og líka milli mála, það er kannski þess vegna sem mér finnst alveg nóg að fá þær 1 x á ári :) Bollur eru uppáhaldið mitt, af öllu gotteríi eru vatnsdeigsbollurnar hennar mömmu þær lang bestu. Þar sem mamma er því miður ekki hérna hjá mér nú eða ég hjá henni þá varð ég að gera það næst besta en það er að baka bollurnar sjálf með uppskriftinni hennar múttu. Þær voru jammmmmmíííí þó ég segi sjálf frá :) Ég bakaði þrefalda uppskrift og sem betur fer komu Hrabba og Viktor og hjálpuðu okkur að borða því annars hefði ég farið létt með að klára þetta sjálf :) Vigtinni til mikillar mæðu :)

Set inn myndir, fyrir þig mamma til að sýna hvað ég var myndó :) Þær líkjast þínum nú smá.


Annars var helgin hin fínasta, Bjarni bauð nokkrum úr liðinu heim á föstudaginn og var mikið stuð. Daginn eftir bankaði e-d fólk uppá og var ég VISS um að þau væru komin til að kvarta yfir hávaðanum kvöldið áður. Bjarni fór til dyra en ég reyndi að hlusta hvað færi fram, það sem ég heyrði "það ... truflun .... er með ... lista... hugsa um aðra" og svo auðvitað fyllti ég í eyðurnar og niðurstaðan var sú að þau væru komin hingað til að reka okkur út...en nei ekki alveg þau voru bara frá trúarsöfnuði með bækling til að kynna fyrir okkur. Djö.. get ég verið ímyndunarveik.
luvBÍH

16 febrúar 2007

Ekkert nýtt

Tap á móti slagelse 22 - 30, engin stóð á höndum í þessum leik eins og síðasta á móti þeim. En markmaðurinn hjá þeim Cecilie Leganger, besti kvenmarkmaður í heimi að mínu mati, var ótrúlega góð í leiknum, það var einmitt hún sem stóð á höndum í víti í síðasta leik!!!


Ég er búin að opna nýja myndasíðu þar sem ég set inn fullt af myndum, nú þegar eru komin 4 albúm. Þessi síða er læst en þið sem hafið áhuga á lykilorði getið sent mér mail beggah@hotmail.com. Það eru mest eldri myndir þar núna og ætla ég mér að setja inn flest allar myndirnar mínar þannig að nóg er að skoða.
Svo ákvað ég að taka saman afmælisbörn febrúarmánaðar en :

Bjarney sæta vinkona átti afmæli 10.feb. Ég vona að þú hafir átt góðan dag skvísí. Ég gæti sagt endalaust af sögum af Bjarney t.d. þegar ég kynntist henni fyrst af alvöru var þegar við fórum saman til Costa del Sol þar fór Bjarney hreinlega á kostum...gleymi aldrei þeirri ferð.
Svo átti Ísey skvís afmæli 14.feb á sjálfan valentínusardaginn og það var stórafmæli því hún varð eins árs :) mikið ótrúlega líður tíminn hrikalega hratt. Sakna þess ekkert smá að geta ekki heimsókn öll litlu krílin sem vinkonur mínar eiga, þau stækka svo rosalega hratt og maður missir af öllu t.d. þegar þau fá tönnslur, byrja að sitja, skríða, labba, tala og svo get ég ekkert spillt þeim og innprenntað inní þau að ég "begga" er lang best og skemmtilegust og ég hef það e-rn vegin á tilfinningunni að foreldrar þeirra eru ekki nægilega dugleg í því :)


Annars mest lítið að frétta, en ég kem eflaust með fullt af fréttum í lok næstu viku þegar allt fer að skýrast betur.


Eigið góða helgi

luvBÍH

13 febrúar 2007

markmaður vs. útileikmaður

hef oft verið spurð að því hvernig ég þori að vera í marki..ertu ekki hrædd við boltann? er ekki vont að fá skot í hausinn eða lærin? o.sv.frv.
Auðvitað er ekkert spes að fá skot í hausinn, ennnnn hins vegar finnst mér frekar að fólk ætti að spyrja útileikmenn í handbolta hvernig í ósköpunum þeir fari að þessu æfingu eftir æfingu og leik eftir leik, þar sem andstæðingarnar nota ýmis konar brögð til að klekja á viðkomandi t.d. hrinda/ýta, slá, klóra, klípa, bíta, tosa í hár, tosa í peysu eða jafnvel stuttbuxurnar, stíga ofan á tærnar, rífa aftan í handlegg, snúa uppá geirurnar og ég veit ekki hvað og hvað. ok kannski ekki alltaf viljandi, en samt stór möguleiki á að þetta geti gerst.
Þetta er eitthvað sem ég hef aldrei komist í tæri við á mínum handboltaferli!!
Ég hef heyrt ansi margar sögur og séð ansi marga marbletti og klór eftir að stelpurnar hafa spilað leiki t.d var Elfa oft með svaðalega marbletti á ólíklegustu stöðum eftir harða baráttu við skvísu í gulri treyju. Aldrei er ég með marbletti eftir svoleiðis slagsmál. Hafrún er líka rosa oft með falleg blá merki út um allt - myndi aldrei fyrir mitt litla líf hætta mér inná línu jeminn....
Það er nú bara þannig að þegar maður er viðbúin skoti og veit hvar það kemur þá er ekkert vont að fá skot í sig og það er ekki oft sem ég fæ skot í hausinn (þó ég sé reyndar búin að fá 2 - 3 í viku undanfarið, en þau koma oft í svona bylgjum...en það er annað mál) auk þess þá geta útileikmenn líka fengið skot í hausinn í vörninni.
Þannig að þegar öllu er á botninn hvolft er bara best að vera markmaður :) ekki satt ??
Annars leikur á morgun á móti slagelse, Anja Andersen og co vilja fara taplausar í gegnum liguna í ár, vonandi að við náum að stríða þeim.
luvBÍH
p.s nýjar myndir undir janúar 2007 hér til hægri.

10 febrúar 2007

Forerunner 305

er snilldartæki, en þetta er púlsmælir, sem mælir einnig hraða, km, kaloríubrennslu og er einnig GPS tæki. Það er hægt að gera allskyns kúnstir með þessu tæki t.d. getur maður sett inn interval prógram og þess háttar...jamm allavega er algjört snilldar tæki. Bjarni var með það á sér í síðasta æfingaleik á móti sønderjyske, sem þeir unnu 3-1, því hann langaði að vita hversu marga km hann hleypur í einum leik. Talan kom okkur á óvart, en endilega kíkið á síðuna hans Bjarna en hann er með smá skoðanakönnun þar sem þið getið giskað á rétt svar :)

enn og aftur komin helgi sem er bara gott mál, við ætlum að kíkja aðeins út í kvöld.

ég segi því bara góða helgi og njótið þess að eiga frí þ.e.a.s. þið sem eruð það heppin :)
luvBÍH

07 febrúar 2007

rólegheit og gúrkutíð...

það er rólegt lífið þessa dagana hjá okkur í DK, Bjarni er á fullu að æfa og spila æfingaleiki og gengur alltaf betur og betur hjá þeim, vonandi að þeir toppi á réttum tíma en fyrsti leikurinn er 13.mars og fyrstu þrír leikirnir eru gríðarlega mikilvægir en þeir spilast á móti liðum sem eru í neðri hluta deildarinnar.
Óvissuferðin sem liðið hans fór í um daginn var engin skemmtiferð, engin bjór í annarri og afslöppun eða þess háttar, heldur var þetta eins konar survivor og því kom súkkulaðið sem ég stakk ofan í töskuna hans að VIRKILEGA GÓÐUM NOTUM :) hann og hópurinn hans voru ánægðir með kelluna :)
Vinnan var ekki eins og ég bjóst við en ég þetta er allt í vinnslu og skýrist vonandi sem fyrst, á meðan bíð ég bara róleg og nýt þess að hafa það huggulegt. Held reyndar að ég sé komin með netta svefnsýki...aftur já tók 1 ár hérna að forðum þar sem ég gerði ekkert annað en að sofa....en já allavega þá get ég sofið endalaust hérna alveg ferlegt.
Leikur á morgun hjá okkur århus píum á móti Kolding sem er með 13 stig 2 sætum fyrir ofan okkur, en við erum með heil 8 stig :) Árný pæja ætlar að kíkja á leikinn og verður gaman að fá að knúsa hana aðeins og spjalla við.
Það vantar sko mikið vinkonurnar hingað út, því á kvöldum eins og akkurat þessu væri maður alveg til í að slá á þráðinn og fá e-a í heimsókn eða kíkja í heimsókn, kaffihús, bíó eða bara hanga með skvísunum. Já það koma tímar sem manni langar heim :)
annars er ég komin með rosalega magaæfingu fyrir ykkur, getið fengið útrás í leiðinni en ég fór í ræktina áðan í e-n tíma og þar gerðum við furðulegustu magaæfingu sem ég hef nokkurn tíma gert...við áttum að vinna 2 og 2 saman þar sem önnur stóð með hendur fyrir aftan hnakka og spennti magann á meðan hin átti að kýla í hann hehehehe ....spes myndi ég segja :)
jæja nóg í bili
luvBÍH

04 febrúar 2007

Hversdagslegt

Janúar bara liðinn, vá hvað tíminn líður hratt, en ég er bara fegin því hvað tíminn líður hratt þessa stundina, hef mínar ástæður fyrir því :) ...ooo er alltaf svo leyndardómsfull...

Fyrsti vinnudagurinn á morgun, sendið mér endilega góðar hugsanir, er orðin pínu stressuð yfir því að þurfa að tala dönsku svona rosa mikið...en vonum að þetta fari vel. Byrja eldsnemma eða 7:15 já það verða viðbrigði enda langt síðan ég hef stillt klukkuna svo snemma :) letilíf hugsið þið...nei bara nice líf :)

Við fórum í mat til Harðar og Birnu í gær, tókum að sjálfsögðu spil og það sem varð núna fyrir valinu var sequence, skemmtilegt spil, sem Bói og Tinna unnu, en Bjarni var ekki sáttur við spilamennskuna hans Bóa hehe fannst hann tala of mikið :) Ég og Bjarni erum að sjálfsögðu búin að skipuleggja taktík í næsta spili og getum lofað svaka spilamennsku næst.

við erum síðan búin að skipuleggja keilu og púl keppni sem verður vonandi næstu helgi :)

kveð að sinni
BÍH

01 febrúar 2007

Að vera íslendingur í Danmörku í dag...

er ekkert sérstakt...úff hvað þetta var svekkjandi. Við vorum fjögur hérna heima, ég, m&p og Bjarni alveg óð, veit ekki hvað fólkið á efri hæðinni hefur haldið, en því miður náðum við ekki að sigra oooooo. Við ætluðum að reyna að komast á leikinn en fengum því miður ekki miða hefði verið frábært að upplifa stemminguna.





(Bjarni alveg crazy í leiknum!!)



Annars er síðasta vika búin að fljúga áfram, enda eru m&p búin að vera í heimsókn og eins og alltaf er frábært að hafa þau. Við erum búin að bralla fullt en einnig að hugga okkur inn á milli og auðvitað horfa á handboltaleiki :) Ég ákvað síðan í gær að baka "mínar" víðfrægu pizzur fyrir þau og voru þau svo djörf að segja að þær væru sko betri en Pizza centro pizzurnar á Spáni, Elín Rós og Guðmundur + fjölsk. þekkja þær :)




Ekki nóg með að m&p séu farin þá er Bjarni farin líka, reyndar bara í eina nótt en þeir fóru í óvissuferð með liðinu sem tekur einn sólarhring. Ég held reyndar að þetta sé ekki svona skemmti óvissuferð heldur meira eins og survivor eða e-ð þess háttar. Þeir máttu ekki einu sinni hafa GSM með sér og tekið var fram að ekkert sjónvarp væri á staðnum þannig að þeir missa af undanúrslitaleikjunum í kvöld. Ég laumaði samt súkkulaði í töskuna hans ef hann skildi nú ekki fá neitt að borða hehe :)



(M&p til vinstri í Regnskóginum, þar voru allskonar dýr, fiskar, hákarl,slöngur,apar,eðlur,kóngulær,páfagaukar o.fl. )

(Eðla til hægri - sem ég hélt að væri uppstoppuð og ætlaði að pota í)






Helgin er óákveðin, eflaust horft mikið á handbolta og svo erum við að keppa bæði á lau, Bjarni æfingaleik en ég alvöru leik á móti FCK.

Svo átti Biggi afmæli á Sunnudaginn stórafmæli :) Ég nefni ekkert aldurinn en það skiptir mestu að vera vera ungur í anda ;) Til hamingju Biggi.


Og í gær átti mín yndislega vinkona hún Silla afmæli 31.01. Ég vona að þið hafið það gott í kvöld, veit að dagurinn í gær var þéttskipaður en njóttu allavega kvöldsins skvís. Silla er búin að vera vinkona mín lengi lengi, fyrstu kynni mín af henni voru þegar hún sótti mig til að ég gæti spilað leik með 2.flokk á móti Víking, þeim vantaði markmann og ég var fengin til að koma. Við töpuðum með 1 marki sem var skorað á síðustu sek. Kalli var að þjálfa og ég var já hmmm bara skíthrædd við hann þannig að ég fór bara áður en hann komt inní klefa til að "tala" við okkur eftir leikinn. Þetta er fyrsta og eina skiptið sem ég hef bara farið án þess að hlusta á þjálfarann tala hehehe og já ég spilaði auðvitað ekki meira með þeim, ekki vegna þess að hann bannaði mér það heldur afþví ég ÞORÐI ÞVÍ EKKI hehehe get hlegið endalaust af þessu :) En já Silla er æði í alla staði, lovja sæta.


Svo vann Elma Dögg frænka mín Íslandsmeistaratitil á sunnudaginn ekkert smá frábært hjá þeim og Bjarney vinkona er einmitt að þjálfa þær og ég veit að þær (allavega Elma) eru rosa ánægðar með hana finnst þú frábær Bjarney :) knús og hamingju óskir til ykkar. (Elma er efri röð lengst til hægri en Bjarney efri röð lengst til vinstri :o) )


Hafið það gott
Berglind

26 janúar 2007

Fréttir fréttir

Kellan fór í atvinnuviðtal í morgun sem tók einungis TVÆR KLUKKUSTUNDIR ég hélt að fyrsta viðtalið væri bara svona létt spjall aðeins að heyra í mér og svona, eða það talaði konan um í símann þegar hún hringdi í mig, en áður en ég vissi af átti ég að byrja á mánudaginn og ég veit ekki hvað og hvað...en ég stoppaði það nú af og byrja ekki fyrr en mánudaginn 5.feb þá fer ég í svona læri þ.e. fylgi hjúkku eftir. En já allavega þetta er starf í heimahjúkrun og ég fæ að starfa sem hjúkrunarfræðingur en er alltaf með annarri með mér sem mér finnst nauðsynlegt þar sem ég er nú ekki altalandi dönsku og hvað þá allt hjúkkumál á dönsku. Mér lýst bara nokkuð vel á þetta, þarf bara að fara að skrifa niður orðalista :) til að vera alveg viss um allt sem ég gæti þurft að segja...jiii sá listi verður eflaust mjög langur :) Þessi vinna er líka rosa góð fyrir mig vegna þess að þær hringja í mig þegar þeim vantar og ég get sagt já eða nei þannig að ég er ekki föst ákveðna daga, sem er algjör snilld uppá ef gestir koma og þess háttar.

Svo eru mamma og pabbi komin til okkar sem er æði og eru þau einmitt að koma og ætlum við að kíkja á útsölur áður en þær hætta.
Hafið það sem best elskurnar
luvBegga

23 janúar 2007

Upprisa....

Alfreð sagði í fréttablaðinu í gær að Íslenska liðið hefði framið sjálfsmorð nú þá segi ég að þeir hafi risið upp frá dauðum í gær í leiknum á móti Frökkum djö...snilld var þetta og enn meiri snilld að Hrabba snillingur reddaði því að við gátum horft á leikinn með tilheyrandi öskrum og látum. Ég er að reyna að redda mér og mor&far miða á milliriðlana veit ekki alveg hvernig það endar virðist vera uppselt í allt. Í versta falli þá getum við vonandi séð alla leikina í sjónvarpinu en það væri bara svo klikkað að vera á staðnum jiiiii ég fæ bara gæsahúð.
meira var það ekki
Áfram Ísland og plíííííísssssss að við fáum miða :)
luvBegga

22 janúar 2007

Ég hafði rangt fyrir mér..leikurinn var sko aldeilis ekkert sýndur á netinu í gær..allavega ekki erlendis, bara innlendis þ.e.a.s. á Íslandi...já púúúú ekki sátt því ég hélt einmitt að þeir sem horfðu mest á netsjónvarp væru þeir sem eru erlendis. En jæja nennum ekki að velta okkur uppúr því en vonandi að varaáætlunin reddist en Hrabba er að vinna í því :)


Það gekk ekki nógu vel hjá "strákunum okkar" í gær því miður en ég hef fulla trú að því að þeir nái að sigra í kvöld, sendum þeim öll góða strauma.





Ég er samt búin að ákveða með hvað liði ég held ef að Ísland kemst ekki áfram en það er Ungverjaland. Þeir eru með DK í riðli þannig að við höfum séð leikina með þeim. Ástæðan er ekki endilega sú að þeir vinni þetta eða að þeir séu sætir :) heldur er liðsstjórinn þeirra algjör snilld :) Ég er búin að reyna að leita að myndum af honum á netinu en finn ekki en þessi maður er snilld...hann er eiginlega sköllóttur, frekar lítill og með bumbu og svo er hann með hvítt svitaband á hausnum og best af öllu þá er hann með BLEIKAN BANGSA sem lukkudýr hehe ég trúði þessu ekki þegar ég sá þetta...en hann er alveg frábær..fer inní miðjuna á hringnum í leikhléum og er greinilega aðal maðurinn :)





Annars er snjórinn mættur til okkar með tilheyrandi frosti purrrrrr kuldi, en versta er þó að ég þarf að leggja af stað hálftíma fyrr á æfingar vegna þess að umferðin gengur svo hægt í svona frosti þannig að ferðin tekur um 75 mín fyrir mig í staðin fyrir 40 mín. Setti inn mynd sem ég tók út úm gluggann...reyndar er snjórinn nú ekki eins mikill og var heima:)

jæja nóg í bili og segið endilega HÆ ef þið lesið :)
luvBerglind

21 janúar 2007

HM veislan byrjuð

Jeii HM byrjað og sem betur fer verða leikirnir hjá Íslandi sýndir á netinu :) Okkur Drebba-hjúum til mikillar gleði.
Unnum í gær GOG með einu marki 26 - 25. Ég fékk ekkert að spila kom reyndar inná í einu víti varði það en því miður fór boltinn beint til vítaskyttunnar aftur og hún skoraði...en heiii 50% markvarsla :) hehe verður maður ekki að líta á björtu hliðarnar.
Jæja hvernig væri svo að fólk léti aðeins heyra í sér hérna á síðunni, mér þykir voða gaman þegar þið commentið.
luvBerglind